|
1.9.2010 18:04:23 |
|
Matreiðslumaður ársins 2010
Vegna fjölda áskoranna hefur verið ákveðið að framlengja umsóknarfrestinn fyrir matreiðslumann ársins fram á föstudaginn 3.september. Mánudaginn 6. september verður dómarafundur með keppendum. Stund og staður verður kynnt von bráðar.
Nefnd um matreiðslumann ársins
|
|
|
|
|
1.9.2010 17:47:47 |
|
Kokkar í Danmörku
Stofnuð hefur verið Facebook síða sem er ætluð íslenskum matreiðslumönnum í Danmörku og er hún hugsuð til að halda tengsl í Danaveldinu og síðast en ekki síst að vita af hverjum öðrum. |
|
|
|
|
1.9.2010 10:41:20 |
|
Áhugamenn sjá ekki nýtinguna í eldhúsi OR - Vídeó
Á vef dv.is má sjá frétt með fyrirsögninni: "Innsýn í bruðlið í Orkuveitunni: Engu til sparað við eldhúsið." Með fréttinni fylgir svo myndband með skýringunni "Myndbandið veitir innsýn í lúxusinn í eldhúsinu, allar græjur og tækni eins og hún gerist best". |
|
|
|
|
1.9.2010 08:22:45 |
|
Fyrirlestur Gert Klötzke á nútíma sænsku Jólahlaðborði
Haldinn miðvikudaginn 25. ágúst 2010 á Hilton Reykjavík Nordica - Svipmyndir og vídeó
Gert var í 2 áratugi yfirþjálfari sænska kokkalandsliðins og lyfti grettistaki á þeim vígstöðum. Hann er núna professor í matreiðslu við Háskólann í Umeá í Svíþjóð, einnig er hann meðlimur af culinary committee hjá WACS alheimsamtökum matreiðslumanna og er mikið í að halda dómaranámskeið víða um heim á vegum samtakanna, einnig er hann yfirþjálfari íslenska kokkalandsliðins og verður fróðlegt að sjá hvernig liðið muni standa sig í Lux í Nóv. |
|
|
|
|
31.8.2010 18:39:17 |
|
Eftirréttur ársins 2010
 Eftirrétta keppnin“ Eftiréttur ársins“ verður haldin laugardaginn 25. September í Vetrargarðinum í Smáralind á Matardögum 2010.
Keppnisrétt hafa þeir sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu, konditori og bakaraiðn eða eru á nemasamning í fyrrnefndum greinum. |
|
|
|
|
31.8.2010 18:32:42 |
|
Innnes - Septembertilboð

Skoðið septembertilboð fyrirtækjasviðs Innnes ehf. Frábærar vörur á góðum tilboðum í september. |
|
|
|
|
31.8.2010 08:39:52 |
|
KENTAUR á Íslandi
Ásbjörn Ólafsson ehf. hefur hafið sölu á kokkajökkum, sem henta fyrir bæði kynin, og svuntum frá Kentaur. Um er að ræða stutterma jakka, til að byrja með, í hvítum eða svörtum lit. |
|
|
|
|
31.8.2010 08:29:15 |
|
Kampavín bannað í Ástralíu að beiðni ESB
Ástralskir vínframleiðendur mega ekki lengur nota hefðbundin evrópsk heiti eins og kampavín, púrtvín eða sérrí til að nefna vörur sínar, skv. samkomulagi við Evrópusambandið, sem tekur gildi á morgun. Ástralir fá 1 árs aðlögunartíma til að þurrka út slík nöfn samkvæmt samkomulaginu, sem skrifað var undir fyrir 2 árum til verndar landfræðilegum vörumerkjum ESB. |
|
|
|
|
30.8.2010 15:31:25 |
|
Örugg norræn matvæli í kastljósinu á heimssýningunni í Sjanghæ
Á Norðurlöndum getur maður verið öruggur um að óhætt sé að borða þann mat sem borinn er á borð. Þar hefur verið lögð rík áhersla á öryggi matvæla og meðal annars verið þróað aðferðir til að meðhöndla matvæli og lágmarka áhættu. |
|
|
|
|
30.8.2010 15:00:09 |
|
Jamie Oliver vinnur Emmy verðlaun fyrir bandaríska sjónvarpseriu
Nú nýlega fékk bandaríska útgáfa hans af UK school Dinners campagin Emmy verðlaun en serían er í 6 þáttum og heitir „Jamie Oliver´s Food Revolution".
Þættirnir ganga út á hvernig unglingar í USA geti borðað hollari mat í skólunum.
|
|
|
|